Brighton samþykkti kauptilboð í Coppola

Mynd: Brighton

Mynd: Brighton
Ítalski miðvörðurinn Diego Coppola gerði flotta hluti á láni hjá Paris FC í efstu deild franska boltans á síðustu leiktíð og ákvað félagið að festa kaup á honum.
Brighton selur Coppola fyrir 20 milljónir evra eftir að hafa keypt hann til sín fyrir tæpar 15 milljónir í fyrrasumar.
Coppola er 22 ára gamall og gekk aðlögunarferlið að enska boltanum ekki sérlega vel, en hann naut sín í Frakklandi í vor og vill vera þar áfram.
Coppola er uppalinn hjá Verona og á tvo A-landsleiki að baki fyrir Ítalíu.
Hann verður annar leikmaðurinn sem Paris nær í á upphafi sumars, eftir að hafa fest kaup á miðjumanninum efnilega Patrick Zabi fyrir um 25 milljónir evra.