Hjulmand fer til Atlético Madrid

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskipti Morten Hjulmand til Atlético Madrid
Hjulmand er búinn að samþykkja fimm ára samning við Atlético og flýgur til spænsku höfuðborgarinnar í dag til að gangast undir læknisskoðun og skrifa undir samning.
Atlético greiðir í heildina um 45 milljónir evra fyrir miðjumanninn.
Hjulmand er 27 ára gamall og hefur verið mikilvægur hlekkur á miðjunni hjá Sporting CP og danska landsliðinu undanfarin þrjú ár.
Hann er mikill stuðningsmaður Arsenal og er með Arsenal húðflúr á öxlinni. Hann er stór aðdáandi Patrick Vieira, fyrrum fyrirliða Arsenal sem starfaði síðast sem aðalþjálfari Genoa í Serie A.
Hjulmand hefur meðal annars verið orðaður við Arsenal, Manchester City og Tottenham í fortíðinni. Hann á tvö ár eftir af samningi sínum við Sporting og ætlar ekki að endurnýja við portúgalska stórveldið.