Leipzig nálgast samkomulag við Brighton

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brajan Gruda virðist vera á leið til RB Leipzig á öðrum lánssamningi, nema í þetta skiptið með árangurstengdri kaupskyldu.

TENGT EFNI
Leipzig vill halda ungstirninu frá Brighton
Gruda er 22 ára sóknartengiliður sem kom með beinum hætti að 6 mörkum í 13 leikjum á seinni hluta þýska deildartímabilsins.
Gruda gekk til liðs við Leipzig á lánssamningi í janúar og er þýska félagið að semja við Brighton um nýjan lánssamning.
Í samningnum verður kaupskylda og eru félögin að semja um hvað þarf til að virkja skylduna. Gruda á aðeins tvö ár eftir af samningi og er mögulegt að hann framlengi við Brighton um eitt ár áður en hann heldur aftur til Þýskalands.
Gruda er Þjóðverji og hefur spilað 31 leik fyrir yngri landsliðin.