Sean Steur til Newcastle (Staðfest)

Mynd: Newcastle

Mynd: Newcastle
Newcastle hefur gengið frá kaupum á hollenska unglingalandsliðsmanninum Sean Steur frá hollenska félaginu Ajax.
Steur skrifar undir fimm ára samning við Newcastle og greiðir enska félagið um 23 milljónir punda fyrir kappann. Steur kom við sögu í 25 leikjum með Ajax á síðasta tímabili og varð sá yngsti í sögu félagsins til að leggja upp mark í Meistaradeildinni.
Steur er 18 ára miðjumaður sem litið er á sem mögulegan arftaka fyrir Sandro Tonali sem seldur var til Tottenham.

Steur fylgir á eftir Bazoumana Toure og Ewen Jaouen sem gengu í raðir Newcastle fyrr í sumar. Þeir Sandro Tonali og Anthony Gordon hafa hins vegar verið seldir og fyrirliðinn Bruno Guimaraes er orðaður í burtu.
Welkom bij Newcastle United, Sean ???? pic.twitter.com/DnsFlyNVJy
— Newcastle United (@NUFC) July 9, 2026