Fotbolti.net
09.07.26 - 20:26
Ívan Guðjón Baldursson

Úrvalsdeildarfélög berjast um miðjumann Southampton

Úrvalsdeildarfélög berjast um miðjumann Southampton
Canon

Mynd: EPA

Sky Sports greinir frá miklum áhuga úrvalsdeildarfélaga á miðjumanninum Shea Charles sem er samningsbundinn Southampton.
Leeds United er talið leiða kapphlaupið en Southampton hefur hafnað tveimur kauptilboðum frá félaginu, það seinna 20 milljón punda virði.

Crystal Palace og Fulham hafa núna bæst við kappið en Charles er með tvö ár eftir af samningi við Southampton.

Charles er 22 ára gamall og hefur reynst algjör lykilmaður í landsliði Norður-Írlands þrátt fyrir ungan aldur, þar sem hann er með 35 A-landsleiki að baki.

Hann er uppalinn hjá Manchester City og skoraði 6 mörk í 38 leikjum með Southampton á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.