Byrjunarlið Stjörnunnar og Keflavíkur: Ari Leifs en enginn Árni Snær - 17 ára í liði Keflavíkur

Darri Bergmann ver mark Stjörnunnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Egill Valur Karlsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Darri Bergmann ver mark Stjörnunnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 18:00 hefst leikur Stjörnunnar og Keflvíkur í Bestu deildinni. Leikurinn er á heimavelli Stjörnunnar, Samsungvellinum. Leikurinn er liður í 18. umferð deildarinnar sem hefst í dag og endar á morgun með leik Fram og KR.
Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar gerir 3 breytingar eftir 2-3 úti sigur gegn Val í síðustu umferð. Árni Snær markvörður var að gifta sig og spilar ekki, Darri Bergmann kemur í hans stað. Þorri Mar fer á bekkinn en Guðmundur Kristjáns fór af velli meiddur gegn Val og er þá ekki á skýrslu. Ari Leifs byrjar sinn fyrsta leik fyrir Stjörnuna, Bjarki Hauks byrjar líka.
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur gerir 2 breytingar eftir 3-0 heimasigur gegn KA í síðust umferð. Eiður Orri Ragnarsson fékk rautt í síðasta leik og Marin Brigic er í leikbanni vegna uppsafnaðra spjalda. 17 ára gamall Egill Valur Karlsson byrjar sinn fyrsta leik fyrir Keflavík og Baldur Logi Guðlaugsson byrjar líka.
Byrjunarlið Stjarnan
- 1. Darri Bergmann Gylfason (m)
- 3. Gustav Kjeldsen
- 7. Örvar Eggertsson
- 8. Jóhann Árni Gunnarsson
- 11. Birnir Snær Ingason
- 14. Bjarki Hauksson
- 18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
- 19. Ari Leifsson
- 22. Emil Atlason (f)
- 23. Benedikt V. Warén
- 32. Örvar Logi Örvarsson
Byrjunarlið Keflavík
- 1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
- 3. Axel Ingi Jóhannesson
- 4. Ígnacio Heras Anglada
- 6. Sindri Snær Magnússon (f)
- 7. Dagur Ingi Valsson
- 10. Stefan Alexander Ljubicic
- 17. Baldur Logi Guðlaugsson
- 18. Ernir Bjarnason
- 21. Alpha Conteh
- 22. Ásgeir Páll Magnússon
- 47. Egill Valur Karlsson

Egill Valur Karlsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
