Fotbolti.net
09.11.19 - 16:37
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið Leicester og Arsenal: Özil heldur sætinu

Bellerin, Holding og Kolasinac koma inn í vörnina

Byrjunarlið Leicester og Arsenal: Özil heldur sætinu
Canon

Mynd: Getty Images

Stórleikur dagsins hefst á næstu klukkustund og verður afar áhugavert að sjá hvernig lærisveinum Brendan Rodgers í Leicester gengur á heimavelli gegn Arsenal.
Það er ekkert sem kemur á óvart í liðsvali Rodgers, sem gerir ekki neina breytingu frá sigrinum gegn Crystal Palace í síðustu umferð.

Unai Emery gerir þrjár breytingar á liði Arsenal sem gerði 1-1 jafntefli við Wolves í síðustu umferð. Mesut Özil heldur byrjunarliðssæti sínu og spilar fyrir aftan Pierre-Emerick Aubameyang og Alexandre Lacazette.

Hector Bellerin kemur inn í byrjunarliðið ásamt Rob Holding og Sead Kolasinac. Sokratis, Kieran Tierney og Dani Ceballos detta úr liðinu.

Leicester er í fjórða sæti sem stendur, með 23 stig eftir 11 umferðir. Arsenal er í fimmta sæti, með 17 stig.

Leicester: Schmeichel, R. Pereira, Evans, Soyuncu, Chilwell, Ndidi, Tielemans, Maddison, Perez, Barnes, Vardy
Varamenn: Ward, Justin, Morgan, Choudhury, Praet, Albrighton, Gray.

Arsenal: Leno, Bellerin, Chambers, Luiz, Holding, Kolasinac, Guendouzi, Torreira, Özil, Aubameyang, Lacazette
Varamenn: Martinez, Sokratis, Tierney, Willock, Saka, Pepe, Martinelli

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal7+618
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Leeds7+310
8Everton7+110
9Ipswich Town8-410
10Hull City7+19
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Man Utd707
14Crystal Palace7-87
15Bournemouth7-46
16Tottenham7-46
17Nott. Forest8-46
18Coventry7-86
19Fulham7-35
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.