Fotbolti.net
09.12.19 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

John Cross: Arteta rétti maðurinn fyrir Arsenal

Mikel Arteta.

Mikel Arteta.

Canon

Mynd: Getty Images

John Cross, íþróttastjóri Mirror, telur að Mikel Arteta sé besti kosturinn fyrir Arsenal. Félagið er í stjóraleit eftir að Unai Emery var látinn taka pokann sinn.

„Ef horft er raunsætt á hlutina þá hefur Arsenal ekki peninga til að fá stórstjörnu sem þjálfara. Max Allegri talar ekki frábæra ensku og gæti orðið Emery II," segir Cross.
„Brendan Rodgers var fyrsti kostur Arsenal en hann er ekki á förum frá Leicester. Það er umræða um að Nuno sé ekki nægilega öflugur í fjölmiðlum og efasemdir um að Pochettino sé til í að taka við öðru liði í London á þessum tímapunkti."

„Arsenal þarf stjóra sem bætir leikmenn, kemur betri mynd á liðið og þekkir félagið. Þess vegna segi ég að Arteta sé rétti maðurinn. Það yrði klárlega áhætta að ráða hann en ég tel að það gæti orðið áhætta sem myndi borga sig."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry10-99
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
John Cross hjá Mirror.

John Cross hjá Mirror.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.