Fotbolti.net
10.02.24 - 19:27
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: Real Madrid skoraði fjögur í titilslagnum

Spánn: Real Madrid skoraði fjögur í titilslagnum
Canon

Mynd: EPA

Real Madrid 4 - 0 Girona
1-0 Vinicius Junior ('6 )
2-0 Jude Bellingham ('35 )
3-0 Jude Bellingham ('54 )
4-0 Rodrygo ('61 )
Real Madrid tók á móti Girona í titilbaráttuslag spænska boltans í dag og sendu lærisveinar Carlo Ancelotti skýr skilaboð með frábærum stórsigri.

Það var aðeins eitt lið á vellinum og voru það Vinicius Junior og Jude Bellingham sem skinu skærast, þar sem brasilíski kantmaðurinn gerði fyrsta mark leiksins áður en hann lagði önnur tvö upp á meðan enski sóknartengiliðurinn skoraði tvennu.

Rodrygo komst einnig á blað í sigrinum sem var afar sannfærandi.

Real Madrid er komið með fimm stiga forystu á Girona og þar á eftir kemur Barcelona í þriðja sæti, ellefu stigum eftir Real en með leik til góða.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Barcelona7+2421
2Atletico Madrid7+916
3Betis7+216
4Real Madrid7+1015
5Sevilla7+113
6Alaves7+511
7Deportivo7+210
8Real Sociedad7-410
9Villarreal7+18
10Athletic6+18
11Getafe7-38
12Vallecano7-58
13Osasuna7-78
14Celta7+27
15Espanyol707
16Racing Santander7-107
17Levante6-45
18Elche7-65
19Valencia7-94
20Malaga7-93
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.