Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fim 10. mars 2022 19:05
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðin í Sambandsdeildinni: Ísak snýr aftur í lið FCK
Ísak Bergmann er mættur aftur í lið FCK
Ísak Bergmann er mættur aftur í lið FCK
Mynd: Getty Images
Íslenski landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson er mættur aftur í lið FCK eftir að hafa verið utan hóps í síðustu þremur leikjum en liðið mætir PSV Eindhoven í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar í kvöld.

Ísak var ekki í hópnum í fyrstu þremur leikjum tímabilsins hjá FCK en þjálfari liðsins sagði að samkeppnin á miðjunni væri mikil og væri það ástæðan fyrir fjarveru hans.

Hann er nú mættur í byrjunarlið FCK en Andri Fannar Baldursson er á bekknum.

Alfons Sampsted er þá í byrjunarliði Bodö/Glimt gegn AZ Alkmaar en leikirnir hefjast klukkan 20:00.

Patson Daka er þá fremstur í liði Leicester City sem mætir Rennes

Leicester: Schmeichel - Justin, Amartey, Soyuncu, Thomas - Tielemans, Ndidi - Dewsbury-Hall, Albrighton, Barnes - Daka

Rennes: Gomis - Traoré, Omari, Aguerd, Truffert - Bourigeaud, Martin, Santamaria, Doku - Terrier, Laborde
Athugasemdir
banner
banner