Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   sun 10. maí 2026 16:43
Brynjar Ingi Erluson
Stöllurnar hans Stjána fallnar um deild
Kvenaboltinn
Kristján Guðmundsson er þjálfari Damaiense
Kristján Guðmundsson er þjálfari Damaiense
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján Guðmundsson og stöllur hans í portúgalska liðinu Damaiense munu leika í B-deildinni á næsta tímabili, en liðið tapaði fyrir Torreense í lokaumferðinni í dag.

Tímabilið hefur verið þungt hjá Damaiense og var óvíst hvort það næði í lið stuttu fyrir mót.

Kristján tók við liðinu 24. ágúst og var ekki búið að græja keppnisleyfi á þeim tíma. Það hafðist í byrjun september og átti þá eftir að manna hópinn, en aðeins fjórir leikmenn voru á skrá.

Níu leikmenn gengu til liðs við Damaiense á lokadegi gluggans. Það tók sinn tíma að undirbúa liðið og vissi Kristján að hann ætti erfitt verkefni fyrir höndum.

Stigasöfnunin gekk hægt og erfiðlega en undir lok tímabils kom smá vonarneisti þegar liðið gerði tvö jafntefli í röð og vann síðan Valadares Gaia, 3-1.

Hetjuleg barátta en ekki nóg. Undirbúningurinn og mannekla stuttu í mót felldi Damaiense sem hafnaði í neðsta sæti með aðeins 11 stig.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru báðar í byrjunarliði Inter sem gerði 3-3 jafntefli við Juventus í Seríu A á Ítalíu. Telma Ívarsdóttir var á bekknum hjá Inter sem er búið að tryggja sér annað sæti deildarinnar.
Slapp
banner
banner