Jóhann Birnir: Þetta er sagan okkar í ár
Auglýsing

Jóhann Birnir, þjálfari ÍR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Birnir, þjálfari ÍR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR fór í heimsókn á Leiknisvöll, þar sem Leiknir sigruðu 2-1. Jóhann Birnir, þjálfari ÍR var fenginn í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 2 - 1 ÍR
ÍR komst í 1-0 stöðu eftir algjört furðumark frá Ágústi Unnari á 38. mínútu.
„Við vorum ánægðir að fá mark þó þetta var slysalegt af hálfu Leiknis og þeir eru ábyggilega ósáttir við það'', sagði Jóhann.
Fyrri hálfleikur var ekki mikið fyrir augað, en seinni hálfleikurinn var þeim mun fjörugri.
„Við vorum einum færri þegar líða fer að leikslokum og þá fórum við að taka áhættur. Við vorum náttúrulega yfir í leiknum og manni fannst þeir ekki skapa mikið. Sagan okkar í ár er að það þarf lítið til að skora á okkur''.
Bergvin Fannar Helgason, leikmaður ÍR, fékk að líta rauða spjaldið á 81. mínútu eftir að hafa farið með takkana fyrst í andlitið á Ólafi Íshólm, markmanni Leiknis. Jóhann var spurður út í það atvik.
„Mér fannst þetta ekki sanngjarnt rautt. Mér fannst Bergvin taka boltann og markmaðúrinn kastar sér á móti. En það er ekkert hægt að gera í því.''
ÍR situr í 9. sæti eftir 11 umferðir með 11 stig.
ÍR spilar sinn næsta leik á heimavelli gegn Aftureldingu þann 3. júlí næstkomandi.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.