Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
   mið 10. júní 2026 07:06
Atli Arason
Auburn, Alabama
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Jón Dagur Þorsteinsson
Jón Dagur Þorsteinsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jón Dagur Þorsteinsson, leikmaður Íslands, var svekktur eftir 3-0 tap Íslands gegn heimsmeisturum Argentínu.


Lestu um leikinn: Argentína 3 -  0 Ísland

Það er svekkjandi að þetta endaði 3-0. Mér fannst við ná að halda ágætlega í boltann á köflum og við sköpuðum einhver færi en auðvitað fengu þeir líka sín færi. Þeir eru þvílíkt góðir, heimsmeistarar og allt það. Svekkjandi að tapa þessu og kannski fullstórt en svona er þetta. Þetta er seinasta test-ið áður en alvaran hefst í haust. Við verðum bara klárir þá,“ sagði Jón Dagur í viðtali við Fotbolti.net eftir leik. 

Jón tók undir með Orra Steini, landsliðsfyrirliða að vendipunktur leiksins var þegar Lionel Messi mætti til leiks.

Þegar kallinn kom inn á þá breytti hann þessu svolítið og sýndi kannski af hverju hann er lang bestur í heimi. Maður veit ekki alveg hvað maður á að segja, hann var bara því miður of góður eftir að hann kom inn á. Hann braut okkur alveg bara með fyrstu sendingunni, þá tók hann einhverja 8 leikmenn úr leik með einni sendingu og þeir fengu víti. Þá er þetta orðið 2-0 og við að elta enn þá meira,“ sagði Jón Dagur Þorsteinsson sem ræddi einnig um viðskilnaðinn í Brann og framtíðina sína. Viðtalið í heild má nálgast í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner
banner