Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 10. júlí 2019 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Afríkukeppnin í dag - Fyrri dagur 8-liða úrsitanna
Skýtur Mane Senegal í undanúrslitin?
Skýtur Mane Senegal í undanúrslitin?
Mynd: Getty Images
Afríkukeppnin heldur áfram í kvöld með tveimur leikjum. Langt er liðið á mótið og 8-liða úrslitin hefjast í dag.

Senegal tekur á móti Benín í fyrri leik dagsins. Senegal, með Sadio Mane í broddi fylkingar, hefur unnið alla leiki nema einn, tap gegn Alsír í riðlakeppninni. Liðið lagði Úganda í 16-liða úrslitunum.

Benín er komið í 8-liða úrslitum á fjórum jafntefum en liðið sigraði Morokkó í vítaspyrnukeppni í síðasta leik.

Í seinni leik dagsins mætast lið Nígeríu og Suður Afríku. Nígería vann Kamerún í síðustu umferð en tapaði fyrir spútnikliði Madagaskar í riðlinum.

Suður Afríka er komið í 8-liða úrslit þrátt fyrir tvö töp í riðlakeppninni.

Afríkukeppnin 8-liða úrslit
16:00 Senegal - Benín
19:00 Nígería - Suður Afríka
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner