Fotbolti.net
10.07.26 - 20:32
Ívan Guðjón Baldursson

Arsenal fær bakvörð Barcelona og spænska landsliðsins (Staðfest)

Arsenal fær bakvörð Barcelona og spænska landsliðsins (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Hertz
Enska stórveldið Arsenal er búið að krækja í spænska bakvörðinn Ona Batlle sem kemur úr röðum Barcelona.
Batlle er 27 ára gömul og hefur unnið til ógrynni verðlauna með Barcelona og spænska landsliðinu á síðustu árum, en þar áður lék hún fyrir Manchester United.

Batlle kemur til Arsenal á frjálsri sölu og er ekki tilgreint hversu langan samning hún skrifar undir.

Arsenal vann gegn Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra en datt úr leik gegn Lyon í undanúrslitunum í ár. Þá endaði liðið í öðru sæti ensku Ofurdeildarinnar, fjórum stigum á eftir meisturum Manchester City.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.