Fotbolti.net
10.07.26 - 16:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Englandsmeistararnir fylgjast með Mavropanos

Englandsmeistararnir fylgjast með Mavropanos
Canon

Mynd: EPA

Dinos Mavropanos, leikmaður West Ham, er undir smásjá félaga í úrvalsdeildinni sem hafa áhuga á kappanum. Það er einnig áhugi á honum utan Englands.

Mavropanos þótti leika vel með West Ham þrátt fyrir að liðið hafi fallið úr úrvalsdeildinni á liðnu tímabili.

Arsenal er á meðal félaga sem hefur augastað á Mavropanos en hann var leikmaður félagsins á árunum 2018-22 og lék átta leiki með aðalliðinu. Arsenal er þó þegar með þrjá réttfætta miðverði í hópnum: William Saliba, Christhian Mosquera og Ben White.
Grikkinn, sem er 28 ára, á tvö ár eftir af samningi sínum við West Ham. Hann hefur á sínum ferli einnig leikið með Giannina í heimalandinu og Nürnberg og Stuttgart í Þýskalandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.