Með sama flúr og liðsfélagi sinn hjá Blikum - „Þurfti að breyta um umhverfi"

Mættur aftur í grænt og fær treyju númer 14.

Mynd: Breiðablik

Valgeir og Hlynur eru báðir með tattú af Leiftri McQueen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þekkir vel að spila með Antoni Loga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lék sinn fyrsta leik á ferlinum með Breiðabliki 2020.

Mynd: Breiðablik

Flúrið á fæti Hlyns.

Mynd: Skjáskot/Breiðablik

Hlynur Freyr Karlsson var í vikunni tilkynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks en hann kom á láni frá sænska félaginu Brommapojkarna en hann hefur verið í tvö ár í Svíþjóð. Hann er samningsbundinn sænska félaginu út næsta tímabil.
Hlynur er uppalinn hjá Breiðabliki og þekkir því vel til í Smáranum.
Fótbolti.net ræddi við kappann um heimkomuna.

TENGT EFNI
Spenntur að spila undir Óla aftur - „Draumur að vinna bikar með Blikum“
Varð strax spenntur
Af hverju ertu kominn aftur í Breiðablik?
„Ég þurfti að breyta um umhverfi, var lítið að fá að spila og þegar ég heyrði að Breiðablik hafði áhuga varð ég strax spenntur," segir Hlynur.
Staðan úti var ekkert sérstök
Hvernig var staðan þín úti?
,Staðan hjá mér úti var ekkert sérstök, ég var meiddur allt undirbúningstímabilið og það getur oft verið erfitt að vinna sig inn í liðið eftir það."
„Ég vildi klárlega spila meira en svona er fótboltinn stundum. Tíminn í Svíþjóð hefur mikið verið upp og niður, byrjaði mjög vel og svo byrja ég að spila minna eins og gerist í fótbolta og þá verður þetta erfiðara."
„Toppurinn til þessa var byrjunin á síðasta tímabili: að fá að spila mikið og vinna Malmö á útivelli í fyrsta skipti í sögu BP."
Byrjaðir tímabilið 2025 í liðinu en ert svo í minna hlutverki, getur þú súmmerað upp hvað gerðist?
„Það er lítið til að súmmera upp þannig séð, ég spilaði mikið fram á sumar 2025 og svo voru gerðar breytingar á liðinu sem ég hef engin svör við."
Spenntur að spila aftur með Antoni Loga
Hjá Breiðabliki hittir Hlynur fyrir Anton Loga Lúðvíksson en þeir hafa spilað saman í yngri flokkum Breiðabliks, yngri landsliðunum og með Haugesund í Noregi fyrri hluta árs 2024.
„Það er frábært að vera aftur með honum í liði og við þekkjumst vel. Spiluðum mikið saman upp yngri flokkana hjá Breiðabliki og svo vorum við saman í Noregi þannig ég er mjög spenntur að spila aftur með honum."
Mjög skemmtileg tilviljun
Blikar birtu á samfélagsmiðlum sínum í gær myndband af fyrsta degi Hlyns hjá Blikum. Þar mátti sjá hann hitta Valgeir Valgeirsson í klefanum og báðir eru þeir með flúr og það óvæntasta er að þeir eru með báðir með sama tattúið.
Hvaða tattú er þetta?
„Þetta er minn maður Leiftur Mcqueen. Ég hef líklega horft á Cars oftar en flestir og þetta var uppáhaldið mitt þegar ég var yngri þannig ég ákvað að setja hann bara á löppina."
„Þetta er bara algjör tilviljun, en mjög skemmtileg tilviljun."
Yrði draumur að vinna bikarinn með Blikum
Að lokum, hvernig er leikformið og hvert er markmiðið með Blikum?
„Ég hef lítið fengið að spila en ég er í góðu formi og líður vel.
Markmiðið er alltaf að enda eins ofarlega og við getum í deildinni og svo vinna bikarinn sem mundi vera algjör draumur fyrir mig sem uppalinn Bliki," segir Hlynur.
Breiðablik spilar bikarúrslitaleik seinna í sumar gegn annað hvort Fylki eða Aftureldingu. Hlynur er fæddur 2004, hann getur bæði spilað í vörninni og á miðsvæðinu. Hann er leikmaður U21 landsliðsins og hefur á sínum ferli spilað með Breiðabliki, unglingaliðum Bologna, Val, Haugesund og Brommapojkarna.