Fotbolti.net
10.07.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Óttast samkeppni um Manzambi

Óttast samkeppni um Manzambi
Canon

Mynd: EPA

Newcastle United er búið að ná samkomulagi við Freiburg um kaupverð fyrir svissneska ungstirnið Johan Manzambi, en stjórnendur félagsins eru smeykir um að missa af leikmanninum þrátt fyrir samkomulagið.
Manzambi skrifar undir hjá Newcastle eftir HM
TENGT EFNI

Manzambi skrifar undir hjá Newcastle eftir HM

Newcastle er einnig búið að semja við Manzambi um kaup og kjör, en leikmaðurinn getur ekki skrifað undir samning fyrr en eftir að Sviss hefur lokið keppni á heimsmeistaramótinu.

Svisslendingar mæta heimsmeisturum Argentínu í 8-liða úrslitum á sunnudaginn og því hafa önnur félagslið að minnsta kosti nokkra daga til að jafna tilboð Newcastle og semja við Manzambi, sem er nokkuð eftirsóttur.

Freiburg samþykkti tæplega 60 milljón evra tilboð í Manzambi, sem er tvítugur og leikur sem sóknartengiliður.

Hann er afar eftirsóttur af stórveldum víða um Evrópu og því gæti Newcastle fengið erfiða samkeppni þegar Manzambi sest niður og velur á milli samningstilboða.

Newcastle var næstum búið að krækja í spænska kantmanninn Victor Munoz í júní en Liverpool stal honum á síðustu stundu.

Manzambi kom með beinum hætti að 16 mörkum í 47 leikjum með Freiburg á síðustu leiktíð.
Óttast samkeppni um Manzambi
Canon

Mynd: EPA

Óttast samkeppni um Manzambi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.