Fotbolti.net
10.07.26 - 18:03
Ívan Guðjón Baldursson

Tchaouna fer til Coventry

Tchaouna fer til Coventry
Canon

Mynd: EPA

Coventry City eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni og eru að styrkja sig fyrir komandi átök.
Coventry er að krækja í Loum Tchaouna úr röðum Burnley sem féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Frank Lampard þjálfari hefur miklar mætur á Tchaouna og borgar Coventry 20 milljónir punda fyrir.

Tchaouna er 22 ára kantmaður sem var lykilmaður upp sterk yngri landslið Frakklands, með 17 mörk í 53 leikjum. Hann kom að 4 mörkum í 32 leikjum á síðasta tímabili með Burnley.

Tchaouna er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Coventry í sumar eftir að Frank Onyeka kom úr röðum Brentford. Onyeka lék á láni hjá Coventry á síðustu leiktíð og hjálpaði liðinu að vinna Championship deildina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.