Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
   mið 10. ágúst 2022 00:30
Kári Snorrason
Björn Sigurbjörns: Okkur virðist vera fyrirmunað að skora mörk
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég var mjög reiður í leikhléinu vegna þess að mér fannst þrátt fyrir að við vorum að spila sæmilegan fótbolta að þá gerum við okkur sek um tvö einföld mistök sem kosta okkur mörk, þetta eru mistök í einfaldri talningu í varnarleik í uppstilltum atriðum sem að kosta okkur mörk," sagði Björn Sigurbjörnsson þjálfari Selfoss eftir 3-0 tap gegn Þrótti Reykjavík fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 -  0 Selfoss

„Leikurinn var búinn að vera frekar jafn og kannski frekar við sem að vorum að skapa fyrir utan þessi tvö móment þarna. Í seinni hálfleik þá komum við út með krafti og sköpum okkur helling af dauðafærum og okkur virðist vera fyrirmunað að skora mörk núna."

Björn talaði lengi við dómarann.

„Við vorum þarna bæði þjálfarateymin að tala við dómarann um það að okkur fyndist leikmenn beggja liða illa verndaðir í leiknum og er þetta eitthvað sem er almennt í deildinni. Leikmenn komast upp með of mikið, það er eins og það eigi að lækka einhvern standard vegna þess að þetta er kvennafótbolti með því að refsa ekki fyrir hluti sem yrðu refsað fyrir í karlafótbolta. Það er búið að dæma 6 víti í öllu mótinu, 3 rauð spjöld komin í 12 umferðum og undir 2 spjöldum að meðaltali í leik þetta er ekkert sérstaklega beint að Ása heldur almennt.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.


Slapp
banner
banner