PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
Sara ræðir heimkomuna - „Var í Lyon þegar Dóri spyr mig fyrst hvort ég sé að koma heim“
Sævar Atli ræðir brottrekstur Freys - „Fengum ekki að kveðja hann“
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
   mið 10. ágúst 2022 20:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vill fá Víking á Greifavöllinn í undanúrslitum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var erfiður leikur," sagði Hallgrímur Jónasson aðstoðarþjálfari KA eftir 3-0 sigur liðsins á Ægi í 8 liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld.


Lestu um leikinn: KA 3 -  0 Ægir

„Ægismenn gerðu vel, voru mjög þéttir varnarlega og við vorum lengi að finna glufur þannig það er bara hrós til þeirra."

Honum fannst leikmenn KA ekki nógu skynsamir í uppspilinu.

„Mér fannst við bara ekki nógu skynsamir. Þeir lokuðu vel miðsvæðis, mér fannst við óþolinmóðir að troða boltanum inn á miðjuna. Opnanirnar voru út á köntunum og mér fannst við heldur lengi að átta okkur á því," sagði Hallgrímur.

Hallgrímur var spurður hver væri hans helsta ósk fyrir undanúrslitin. Svarið var einfalt.

„Bara fá Víkingana hingað heim," sagði Hallgrímur.


Slapp
banner
banner