Fotbolti.net
10.08.26 - 16:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Framkvæmdir í Garðabæ - Stjarnan stefnir á að spila næstu leiki í Miðgarði

Miðgarður.

Miðgarður.

Canon

Mynd: Aðsend

Á Samsungvellinum eru farnar af stað framkvæmdir því skipta á um gervigras á keppnisvellinum í Garðabæ.

Áætlað er að verkinu verði lokið fyrir lok mánaðar en bæði karla- og kvennaliðið eiga einn heimaleik fyrir þann tíma.

Stjarnan stefnir á að spila þá leiki í Miðgarði, fjölnota íþróttahúsinu í Garðabæ. Þar æfa liðin á veturna og munu æfa næstu vikurnar á meðan framkvæmdum stendur.
KSÍ þarf að veita Stjörnunni undanþágu fyrir að spila inni í Miðgarði en óljóst er hvað plan B verður ef slík undanþága fæst ekki.

Um heimaleik gegn Þór er að ræða karlamegin og heimaleik gegn Breiðabliki kvennamegin.

fimmtudagur 20. ágúst
Besta kvenna
19:15 Stjarnan-Breiðablik (Samsungvöllurinn)

sunnudagur 23. ágúst
Besta karla
17:00 Stjarnan-Þór
Samsungvöllurinn.

Samsungvöllurinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.