Það er heil umferð í Lengjudeildinni í dag en allir leikirnir fara fram klukkan 14.
Það verður veisla í Árbænum þar sem Fylkismenn taka á móti Þrótti Vogum. Fylkir getur tryggt sér titilinn í dag en liðið er með fimm stiga forystu á HK þegar tvær umferðir eru eftir.
HK heimsækir Grindavík.
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir fær Víking í heimsókn í Lengjudeild kvenna. Með sigri fara heimakonur uppfyrir Víking í 4. sæti deildarinnar.
laugardagur 10. september
Lengjudeild karla
14:00 Grindavík-HK (Grindavíkurvöllur)
14:00 Fylkir-Þróttur V. (Würth völlurinn)
14:00 KV-Þór (KR-völlur)
14:00 Fjölnir-Grótta (Extra völlurinn)
14:00 Vestri-Selfoss (Olísvöllurinn)
14:00 Kórdrengir-Afturelding (Framvöllur)
Lengjudeild kvenna
12:30 Fjarðab/Höttur/Leiknir-Víkingur R. (Fjarðabyggðarhöllin)
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |