Fotbolti.net
11.02.20 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Mourinho: Wolves og Sheffield United geta náð í Meistaradeildina

Jose Mourinho

Jose Mourinho

Canon

Mynd: Getty Images

Wolves og Sheffield United eiga bæði möguleika á að ná Meistaradeildarsæti á þessu tímabili að mati Jose Mourinho, stjóra Tottenham.
Sheffield United er í fimmta sæti og Wolves í níunda en bæði lið hafa gert góða hluti á tímabilinu.

„Wolves og Sheffield United eru að berjast um topp fjóra. Stjórar þeirra geta neitað því og ég skil að þeir reyni það en raunveruleikinn er sá að þeir eru í þessari baráttu. Ekki bara út af stöðunni sem þeir eru í heldur líka út af kraftinum og gæðunum," sagði Mourinho.

Úlfarnir og Sheffield United styrktu sig í janúar og Mourinho segir að þau geti náð Meistaradeildarsæti.

„Þetta snýst ekki bara um Tottenham, Arsenal, Chelsea og Everton. Þetta snýst ekki bara um okkur. Þessi tvö félög eru stórkostleg," sagði Mourinho um Wolves og Sheffield United.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.