Fotbolti.net
11.03.20 - 19:26
Aksentije Milisic

Þýskaland: Mönchengladbach í fjórða sætið

Þýskaland: Mönchengladbach í fjórða sætið
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Borussia M. 2 - 1 Köln</b>
1-0 Breel Embolo ('32 )
1-1 Jorge Mere ('70 , sjálfsmark)
1-2 Mark Uth ('80 )

Borussia Mönchengladbach og Köln áttust við í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld en þetta var lokaleikurinn í 25. umferð.

Mönchengladbach hefur verið í toppbaráttunni í vetur en Köln er um miðja deild. Leikið var fyrir luktum dyrum í kvöld vegna kórónaveirunnar.
Heimamenn byrjuðu leikinn betur en það var Breel Embolo sem skoraði á 32. mínútu eftir undirbúning frá Patrick Hermann og staðan því 1-0 þegar flautað var til leikhlés.

Jorge Mere, varnarmaður Köln, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 70. mínútu og Mönchengladbach því komið í þægilega stöðu. Mark Uth minnkaði hins vegar muninn fyrir gestina á 80. mínútu en nær komust þeir ekki.

Með sigrinum fer Borussia Mönchengladbach upp í fjórða sæti deildarinnar, sex stigum frá toppliði Bayern Munchen. Köln siglir lignan sjó í 10. sætinu.

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Frankfurt8-511
9Mainz8010
10Augsburg8+39
11Stuttgart8-19
12Hoffenheim8-29
13Paderborn8-39
14Köln8-39
15Hamburger8-129
16Union Berlin8-127
17Schalke 048-56
18Gladbach8-114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.