Fotbolti.net
11.05.21 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bruno: Lingard sá besti í deildinni í síðustu 10 leikjum

Bruno: Lingard sá besti í deildinni í síðustu 10 leikjum
Canon

Mynd: Getty Images

Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, er mjög hrifinn af því sem Jesse Lingard er að gera sem lánsmaður hjá West Ham.

Lingard hefur verið frábær frá komu sinni í janúarglugganum og hjálpað West Ham í baráttunni um Evrópusæti. Lingard hefur skorað níu mörk í þrettán leikjum með West Ham og lagt upp þrjú mörk.
Lingard er á láni frá Man Utd út leiktíðina og á möguleika á því að vera í landsliðshópi Englands á EM í sumar. Bruno tjáði sig um Lingard á blaðamannafundi á dögunum.

„Frá mér séð, ef þú horfir á síðustu tíu leiki, þá hefur hann verið besti leikmaður úrvalsdeildarinnar," sagði Bruno.

„Allir hér (hjá Man Utd) eru mjög ánægðir fyrir hans hönd. Hann er kominn með sjálfstraustið aftur og trúna á sjálfum sér," sagði Bruno.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.