Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
   þri 11. júní 2019 21:52
Arnar Helgi Magnússon
Gylfi: Gott að taka sex stig til Ítalíu
Icelandair
Gylfi í leiknum í kvöld.
Gylfi í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum búnir að vera mjög góðir í þessari undankeppni og við höfum gert það sem hefur þurft. Það er frábært að vera með níu stig eftir fjóra leiki og vera búnir með Frakka úti," sagði Gylfi Þór eftir sigurinn á Tyrklandi í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  1 Tyrkland

„Leikplanið í dag gekk fullkomnlega upp. Það var frábært að skora tvö mörk snemma í leiknum en aftur á móti mjög svekkjandi að fá á okkur mark úr horni. Þó svo að þeir hafi verið mikið með boltann þá leið okkur mjög vel."

„Jón Daði var geggjaður í þessum leik. Hann var ekki búinn að spila lengi og það kom mér á óvart hversu vel hann spilaði. Það er mjög þægilegt fyrir mig að spila með honum."

Eftir fjóra leiki eru Ísland, Frakkland og Tyrkir öll með níu stig í riðlinum.

„Þetta er eins og maður bjóst við. Við sáum kannski ekki alveg Tyrkina taka Frakka en við getum stjórnað þessu með því að vinna okkar leiki. Við þurfum að vinna næstu tvo leiki, það myndi setja okkur í góða stöðu."

Það eru stórir dagar framundan hjá Gylfa en hann er að fara að gifta sig um helgina á Ítalíu.

„Hugurinn hefur verið svolítið þar undanfarna mánuði. Það er mikið að hugsa um og ég get ekki beðið. Það er gott að geta tekið sex stig til Ítalíu og haldið veislunni áfram," sagði Gylfi að lokum.


Slapp
banner