Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 11. júlí 2019 12:12
Magnús Már Einarsson
Meiðslin hjá Birki Má ekki alvarleg
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Birkir Már Sævarsson var fjarri góðu gamni þegar Valur tapaði 3-0 gegn Maribor í Meistaradeildinni í gærkvöldi.

Birkir Már er að glíma við smávægileg meiðsli en Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, reiknar ekki með að hann verði lengi frá.

„Ég hef ekki trú á því. Ef þetta hefði verið síðasti leikur í móti þá hefði hann spilað," sagði Óli eftir leikinn í gær.

Valur fer til Slóveníu í síðari leikinn í næstu viku en næsti leikur liðsins í Pepsi-Max deildinni er sunnudaginn 21. júlí gegn Víkingi R.

Hér má sjá viðtalið við Óla Jóa í heild.
Óli Jó: Eitt besta lið sem ég hef mætt í Evrópukeppni
Athugasemdir
banner
banner