Fotbolti.net
11.07.20 - 18:33
Brynjar Ingi Erluson

England: Chelsea fékk skell gegn Sheffield United

David McGoldrick skoraði fyrstu tvö deildarmörkin í sigrinum á Chelsea

David McGoldrick skoraði fyrstu tvö deildarmörkin í sigrinum á Chelsea

Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield Utd 3 - 0 Chelsea
1-0 David McGoldrick ('18 )
2-0 Oliver McBurnie ('33 )
3-0 David McGoldrick ('77 )
Nýliðar Sheffield United unnu Chelsea nokkuð örugglega, 3-0, á Bramall Lane í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Dýrt tap hjá Chelsea í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

David McGoldrick kom Sheffield United yfir á 18. mínútu eftir að Kepa Arrizabalaga varði skot frá Oli McBurnie út í teiginn. Þetta var fyrsta mark McGoldrick í ensku úrvalsdeildinni og jafnframt fyrsta deildarmark hans síðan í apríl á síðasta ári í ensku B-deildinni.

Oli McBurnie bætti við öðru marki á 33. mínútu með skalla eftir laglega sókn heimamanna. Kepa stóð grafkyrr í markinu og Sheffield United komið í 2-0.

McGoldrick gerði annað mark sitt í deildinni á 77. mínútu. Hann lagði boltann á Lys Mousset sem kom boltanum á Ben Osborn. Antonio Rüdiger reyndi að verjast en það vildi ekki betur til en að boltinn endaði hjá McGoldrick sem skoraði örugglega.

Lokatölur 3-0 fyrir Sheffield United og liðið í 6. sæti með 54 stig og baráttan um Evrópudeildarsæti á lífi. Chelsea, sem er í 3. sæti, tapaði þarna mikilvægum stigum í baráttunni um Meistaradeildarsæti en bæði Manchester United og Leicester eiga leik inni.l

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.