De Vrij orðinn samherji Sverris Inga (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hollenski varnarjaxlinn Stefan de Vrij er búinn að skrifa undir eins árs samning við gríska stórveldið Panathinaikos, með möguleika á auka ári.

TENGT EFNI
De Vrij verður liðsfélagi Sverris Inga
De Vrij kemur á frjálsri sölu úr röðum Ítalíumeistara Inter, en hann kom aðeins við sögu í 17 leikjum á tímabilinu.
De Vrij er 34 ára gamall og lék í heildina 296 leiki á átta árum hjá Inter, en þar áður var hann hjá Lazio og Feyenoord. Hann er þar að auki með 79 landsleiki að baki fyrir Holland.
Hjá Panathinaikos mun De Vrij meðal annars berjast við Sverri Inga Ingason um sæti í byrjunarliðinu, en Sverrir á tvö ár eftir af samningi sínum við félagið.