Harry Winks á leið aftur til Ítalíu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enski miðjumaðurinn Harry Winks er á leið aftur í ítalska boltann eftir þriggja ára dvöl hjá Leicester. Fabrizio Romano er meðal fréttamanna sem segja hann vera að skrifa undir hjá Cagliari.
Winks er með eitt ár eftir af samningi sínum við Leicester en félagið leyfir honum að fara ódýrt eftir annað fall á tveimur árum.
Leicester, sem vann ensku úrvalsdeildina 2016, leikur afar óvænt í League One deildinni á næstu leiktíð.
Winks er 30 ára gamall og býr yfir reynslu úr Serie A deildinni eftir að hafa leikið á láni hjá Sampdoria tímabilið 2022-23, þegar félagið féll niður um deild.
Hann skipti til Leicester í kjölfarið, hjálpaði liðinu að komast upp í úrvalsdeildina en tókst ekki að koma í veg fyrir tvö föll í röð eftir það.
Winks er uppalinn hjá Tottenham og lék á sínum tíma 10 landsleiki fyrir England.