Staðfesti yfirvofandi félagaskipti Greenwood

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Oguz Cetin, stjórnandi hjá tyrkneska stórveldinu Fenerbahce, hefur staðfest yfirvofandi félagaskipti Mason Greenwood til félagsins.
Greenwood hefur verið meðal bestu leikmanna frönsku deildarinnar undanfarin misseri en fortíð hans hefur takmarkandi áhrif á hvar hann getur spilað.
Hann kom með beinum hætti að 37 mörkum í 45 leikjum með Marseille á síðustu leiktíð og er tilbúinn fyrir nýjan kafla á ferlinum. Franska félagið er eingöngu reiðubúið til að selja hann fyrir rétta upphæð, eða um 50 milljónir evra.
„Hann er á leiðinni," sagði Oguz Cetin við myndavélar þegar hann var spurður út í félagaskiptin í dag.

TENGT EFNI