Fotbolti.net
11.08.26 - 15:22
Kári Snorrason

Hringdi í Lárus eftir ummælin - „Stóð þarna tapsár eins og einhver frekur krakki“

Útskýrir ummælin umtöluðu.

Útskýrir ummælin umtöluðu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var ekki skot eða vanvirðing gagnvart ÍA eða Lárusi. Við spiluðum leikinn nákvæmlega eins og þeir,“ segir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, aðspurður út í ummæli hans eftir leik liðsins gegn ÍA um helgina.

Eftir fór Sigurður mikinn í viðtali þar sem hann kallaði leikinn viðburð sem ætti ekkert skilt við fótbolta ásamt því að segja að hann missi ást sína á fótbolta við að taka þátt í leikjum sem þessum.

Fótbolti.net sló á þráðinn til Sigurðar í dag og spurði hann nánar út í ummælin og hvað hann ætti við.
Siggi Höskulds: Missir ástina á fótbolta að taka þátt í svona leik
TENGT EFNI

Siggi Höskulds: Missir ástina á fótbolta að taka þátt í svona leik

Þorðu ekki að spila
„Það sem ég átti við er það að leikurinn þróaðist í það að bæði lið þorðu ekki að spila. Uppleggið hjá báðum liðum var að það ætti ekki að leyfa andstæðingnum að pressa,“ segir Sigurður og heldur áfram.

„Við vorum komnir í takt að pressa þannig að Skagamenn vildu ekki spila í gegnum okkar pressu á erfiðum velli - mögulega hefðu þeir reynt það meira á gervigrasi. Þeir ákváðu að fara í það að bomba upp, við vorum undirbúnir fyrir það en díluðum illa við það.

Við ætluðum að vera beinskeyttir til að byrja með en svo þróast leikurinn í það að hvorugt liðið þorði að senda sendingu á eigin vallarhelmingi og öllu var bombað upp.“


Undirliggjandi gremja út í grasvelli
Sigurður segir jafnframt að ekki væri hægt að undirbúa leik sem þennann. „Það sem ég meina með þessu er að það er ekki hægt að æfa þetta á æfingasvæðinu. Þú mætir á æfingasvæðið, æfir og undirbýrð leiki eða heilt tímabil - þú æfir þetta ekki. Þarna eru 90 mínútur af fótbolta sem enginn æfir sig í eða langar að spila. Þetta er ekki skemmtilegt áhorfs.“

„Þetta var ekki skot eða vanvirðing gagnvart ÍA eða Lárusi. Við spiluðum leikinn nákvæmlega eins og þeir. Síðan var þetta örugglega undirliggjandi gremja hjá manni út í grasvelli. Við höfum þróast í það að vera gervigraslið og leikstíllinn okkar snýst um gervigrasfótbolta. Þess vegna verða þessir grasleikir oft erfiðir. Þeir þróast í það að við verðum of beinskeyttir, boltinn er of lítið í leik og þetta verður leikur fasta leikatriða.“

„Þá missir maður ástina á fótbolta að taka þátt í þessu. Þetta var bara það. En svo stend ég þarna tapsár, eins og einhver frekur krakki eftir að hafa tapað leiknum og þá lítur þetta út fyrir að ég hafi verið að skjóta á Skagamenn, sem ég var svo sannarlega ekki að gera.“


Hringdi í Lárus eftir viðtalið
Í Innkastinu hér á Fótbolta.net var greint frá því að Sigurður hefði hringt í Lárus Orra eftir ummælin.

„Ég hugsaði til baka og mér fannst þetta virðingaleysi að tala svona ef hann tók þessu svona. Þegar ég bjallaði á Lárus og kom þessu til skila heyrðist mér að hann hafi ekki tekið þessu þannig og áfram gakk. Mér fannst eðlilegt að gera hreint fyrir mínum dyrum - þetta átti ekki að vera eins og þetta leit út,“ segir Sigurður.

Sástu eftir ummælunum?
„Nei, ég sá ekkert eftir þeim. Fólki finnst gaman að gagnrýna það sem þú segir. Þarna var maður heitur eftir leik, tapsár og allt það. Þetta er eitthvað sem poppar upp í hausinn á þér,“ segir Sigurður og heldur áfram.

„Það er sama hvað þú ferð í mörg viðtöl að þá eru að einhverju leyti alltaf einhver mistök sem maður gerir. Ég sé ekki eftir ummælunum en það er leiðinlegt að þetta hafi komið út sem einhver árás á Skagamenn sem var ekki ætlunin,“ segir Sigurður.

Einar vonandi með í næsta leik
Einar Freyr Halldórsson fór af velli í upphafi seinni hálfleiks vegna meiðsla. Sigurður var spurður út í stöðuna á unga miðjumanninum.

„Hann fékk snúningsbrot í handarbakið. Ekki bein í sundur þannig að hann er með spelku. Vonandi leiðir það til þess að hann geti spilað næsta leik.“

Ánægður með hópinn
Þórsarar hafa styrkt sig vel í sumarglugganum og er liðið að fá Harald Ágúst Brynjarsson frá Víkingi. Haraldur var kallaður til baka frá Njarðvík þar sem hann var á láni í sumar.

Að öðru leyti er Sigurður ánægður með hópinn og býst ekki við frekari styrkingum. „Okkur líður mjög vel með hópinn í dag. Margir að koma til baka eftir meiðsli og við eigum inni. Að taka einn leikmann inn í hópinn í viðbót væri held ég ekki rétt fyrir hópinn.

Við erum búnir að fá innspýtinguna með nýjum leikmönnum og mér finnst það vera nóg. Við verðum fljótir að hrista þennan leik af okkur og verðum klárir gegn Keflavík á laugardaginn,“
segir Sigurður að lokum.
Hringdi í Lárus Orra eftir ummælin.

Hringdi í Lárus Orra eftir ummælin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Undirliggjandi gremja gagnvart grasvöllum.

Undirliggjandi gremja gagnvart grasvöllum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mæta Keflavík á laugardag.

Mæta Keflavík á laugardag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór er í 12. sæti deildarinnar.

Þór er í 12. sæti deildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„En svo stend ég þarna tapsár, eins og einhver frekur krakki eftir að hafa tapað leiknum.“

„En svo stend ég þarna tapsár, eins og einhver frekur krakki eftir að hafa tapað leiknum.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fékk snúningsbrot í handarbakið.

Fékk snúningsbrot í handarbakið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Haraldur Ágúst er að ganga í raðir Þórs.

Haraldur Ágúst er að ganga í raðir Þórs.

Canon

Mynd: Hörður Ágústsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.18+4245
2KR18+2539
3Fram18+1137
4Breiðablik18+629
5Valur18-522
6ÍA18-622
7Keflavík18-622
8Stjarnan18-1021
9ÍBV18-917
10FH18-1017
11KA18-1215
12Þór18-2615
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.