Fotbolti.net
12.02.20 - 22:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Championship: Luton af botninum - Jón Daði skoraði

Jón Daði í baráttunni í kvöld.

Jón Daði í baráttunni í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

Eins og í gærkvöldi fóru fram sex leikir í ensku Championship deildinni í kvöld.

Fjórir leikir hófust klukkan 19:45 og hefjum við yfirferðina á þeim. Í Bristol sigruðu heimamenn í City lið Derby County í fimm marka leik.

Bristol komst í 3-0 en Derby var nálægt endurkomu því liðið minnkaði muninn í 3-2 áður en leik lauk. Wayne Rooney var á sínum stað í liði Derby og bar fyrirliðabandið. Derby er tíu stigum frá umspilssæti en Bristol er með jafnmörg stig og Preston í baráttunni um síðasta sætið í umspili.
Cardiff fór til Huddersfield og valtaði yfir heimamenn. Huddersfield hefur verið í brasi í vetur eftir fall úr úrvalsdeildinni síðasta vor. Cardiff skoraði þrjú í kvöld án þess að heimamenn náðu inn marki. Cardiff, sem féll einnig í vor, er fjórum stigum frá umspilssæti.

Luton vann góðan sigur á Miðvikudagsmönnum. James Collins skoraði eina mark leiksins um miðjan fyrri hálfleik. Sigurinn kemur Luton úr botnsæti deildarinnar. James Collins hafði áður en hann skoraði klúðrað vítaspyrnu.

Millwall og Fulham skildu jöfn, 1-1. Aleksandar Mitrovic og Jón Daði Böðvarsson skoruðu mörkin í leiknum. Fulham er í 3. sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Leeds sem er í öðru sæti. Jón Daði lék allan leikinn í kvöld.

Klukkan 20:00 hófust tveir leikir. Topplið West Brom sótti góð þrjú stig til Reading þar sem liðið kom til baka eftir að hafa lent undir snemma leiks. West Brom er nú með sex stiga forskot á toppinum.

Að lokum sigraði Preston lið Stoke á útivelli, 0-2. Stoke er í fjórða neðsta sæti en Preston kom sér upp í umspilssæti.

Bristol City 3 - 2 Derby County
1-0 Nahki Wells ('38 )
2-0 Filip Benkovic ('45 )
3-0 Famara Diedhiou ('58 )
3-1 Martyn Waghorn ('61 )
3-2 Chris Martin ('82 )

Huddersfield 0 - 3 Cardiff City
0-1 Josh Murphy ('28 )
0-2 Will Vaulks ('33 )
0-3 Callum Paterson ('69 )

Luton 1 - 0 Sheffield Wed
1-0 James Collins ('25 )

Millwall 1 - 1 Fulham
0-1 Aleksandar Mitrovic ('3 )
1-1 Jón Daði Böðvarsson ('7 )

Reading 1 - 2 West Brom
1-0 George Puscas ('11 , víti)
1-1 Matheus Pereira ('26 )
1-2 Kyle Bartley ('49 )

Stoke City 0 - 2 Preston NE
0-1 Alan Browne ('58 )
0-2 Tom Barkhuizen ('75 )
Færi forgörðum hjá Millwall.

Færi forgörðum hjá Millwall.

Canon

Mynd: Getty Images

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough13+1328
2Birmingham14+1326
3Swansea14+526
4Stoke City14+526
5West Brom14+525
6Southampton14+1524
7Wolves13+724
8West Ham13+1522
9Sheffield Utd14+322
10Portsmouth14+322
11QPR14+521
12Norwich14+318
13Millwall14-118
14Blackburn14-218
15Bristol City13-218
16Bolton14-717
17Lincoln City14-1015
18Cardiff City13-114
19Wrexham13-414
20Watford14-1014
21Charlton Athletic14-1114
22Burnley14-810
23Derby County14-187
24Preston NE14-185
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.