Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 12. apríl 2021 17:39
Brynjar Ingi Erluson
Tiffany McCarty í Breiðablik (Staðfest)
Tiffany McCarty mun spila með Blikum í sumar
Tiffany McCarty mun spila með Blikum í sumar
Mynd: Knattspyrnudeild Breiðabliks
Tiffany McCarty er gengin til liðs við Breiðablik frá Selfossi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Blikum í dag.

Tiffany, sem er þrítug, spilaði með Selfyssingum á síðasta tímabili en hún gerði níu mörk í sextán deildarleikjum.

Hún gerði frábæra hluti í bandaríska háskólaboltanum. Tiffany lék með Florida State og skoraði þar 63 mörk í 98 leikjum og á enn markametið fyrir liðið.

Tiffany spilaði í atvinnumannadeildinni í Bandaríkjunum með Washington Spirit, Houston Dash og Kansas City en hún hefur einnig spilað fyrir japanska liðið Albirex og norska liðið Medkila.

„Við Blikar væntum mikils af Tiffany sem er reynslumikill leikmaður og þekkir íslenska boltann af veru sinni á Selfossi enda getur hún bæði lagt upp og skorað mörk," sagði Vilhjálmur Kári Haraldsson, þjálfari Breiðabliks.
Athugasemdir
banner
banner
banner