Man Utd vill fá Watkins - Helmingslíkur á að Ten Hag verði áfram - PSG hefur áhuga á Mateta
   fös 12. maí 2017 13:30
Magnús Már Einarsson
FH fær leikmann frá Rangers (Staðfest)
FH fær liðsstyrk.
FH fær liðsstyrk.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Vicky Bruce hefur gengið til liðs við FH en hún mun leika með liðinu í Pepsi-deild kvenna í sumar.

Vicky gerði samning við FH út tímabilið en hún spilaði síðast með Glasgow Rangers í Skotlandi.

Um er að ræða fjölhæfan leikmann sem getur leyst nokkrar stöður á vellinum. Vicky er frá Bandaríkjunum en hún er einnig með breskt vegabréf.

„Við bjóðum hana velkomna til FH en hún mun koma til landsins um næstu mánaðamót og verður því klár í slaginn eftir landsleikjahléið í byrjun júní," segir í frétt á vef FH.

Vicky þekkir Lindsey Harris, markvörð FH, en þær spiluðu saman í háskólaboltanum í Bandaríkjunum á sínum tíma.

FH hefur farið vel af stað í Pepsi-deild kvenna en liðið er með sex stig eftir þrjá leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner