12.05.26 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Dybala ekki með tilboð frá Roma

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Argentínski fótboltasnillingurinn Paulo Dybala er að renna út á samningi hjá Roma í sumar.
Dybala, sem hefur glímt við tíð meiðslavandræði á ferli sínum, er 32 ára gamall og hefur leikið fyrir Palermo, Juventus og Roma í ítalska boltanum, auk þess að eiga 40 landsleiki að baki fyrir Argentínu.
Hann hefur komið með beinum hætti að 8 mörkum í 25 leikjum á meiðslahrjáðu tímabili og er ekki lengur upp á sitt besta. Hann þótti einn af allra bestu leikmönnum Serie A deildarinnar frá 2015 til 2018 og hefur í heildina komið að 209 mörkum í 368 leikjum í deildinni.
„Samningurinn minn segir að næsti heimaleikur verði sá síðasti fyrir Roma," sagði Dybala á fréttamannafundi fyrir leik Roma á útivelli gegn Parma um helgina. „Samningurinn er að renna út og ég hef ekki heyrt í neinum frá Roma um að gera nýjan samning."
Roma tekur á móti Lazio í höfuðborgarslagnum næsta sunnudag og er liðið í harðri baráttu um meistaradeildarsæti þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af deildartímabilinu.
Talið er að Dybala sé á leið til Boca Juniors á frjálsri sölu í sumar en Tyrklandsmeistarar Galatasaray hafa einnig áhuga.

TENGT EFNI
Dybala á leið til Boca Juniors

TENGT EFNI