Éderson ekki í hóp
Brasilíska landsliðið er að undirbúa sig fyrir heimsmeistaramótið sem verður haldið í Norður-Ameríku í sumar og er búið að velja 55 leikmanna úrtakshóp. Carlo Ancelotti þjálfari mun skera hópinn niður í 26 manns í næstu viku.
Goðsögnin Neymar, 34 ára kantmaður Santos, er í hópnum en hann dreymir um að fara með á fjórða heimsmeistaramótið í röð eftir að hafa verið í hóp 2014, 2018 og 2022.
Neymar hefur verið að glíma við mikið af meiðslum á undanförnum árum en hann er í miklu stuði þessa dagana. Hann var frá keppni vegna meiðsla í byrjun árs og er búinn að spila 13 leiki frá endurkomu sinni um miðjan febrúar. Í þessum leikjum hefur Neymar skorað 6 mörk og gefið 3 stoðsendingar.
Það vekur athygli að Éderson, miðjumaður Atalanta á Ítalíu, er ekki með í úrtakshópnum.
Hópurinn:
Markmenn: Alisson, Ederson, Bento, Souza, John, Miguel
Varnarmenn: Marquinhos, T.Silva, Gabriel, Bremer, Beraldo, Murillo, Ibanez, Alexsandro, Fabricio, L.Pereira, Reis, Wesley, P.Henrique, Danilo, Augusto, Vitinho, Sandro, D.Santos, C.Henrique, Juba, Kaiki
Miðjumenn: Casemiro, Guimaraes, Fabinho, A.Santos, Danilo, Paqueta, Sara, J.Gomes, A.Pereira, Joelinton, Gerson, M.Pereira
Sóknarmenn: Vinicius, Neymar, Endrick, Raphinha, Cunha, L.Henrique, Martinelli, J.Pedro, Estevao, Rayan, Antony, Thiago, Pedro, Richarlison, Jesus, Jorge



