Fotbolti.net
27.06.26 - 14:27
Brynjar Ingi Erluson

Sigurður Egill fór sárþjáður af velli - „Þetta lítur ekki vel út“

Sigurður Egill fór sárþjáður af velli - „Þetta lítur ekki vel út“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Egill Lárusson, lykilmaður Þróttar, fór sárþjáður af velli í upphafi leiks gegn Vestra í Lengjudeildinni í dag.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 1 Vestri
Sigurður kom til Þróttar frá Val fyrir tímabilið og hefur verið eitt helsta vopn liðsins í sóknarleiknum. Þróttarar stefna á að komast upp í efstu deild á ný.

Hann lenti í slæmu samstuði við Sergine Fall eftir rúmlega sjö mínútur og hélt sárþjáður utan um hnéð.

Sigurður stóð á fætur stuttu síðar og haltraði, en lagðist síðan utan vallar áður en honum var skipt af velli.

„Sigurður Egill fellur eftir samstuð við Fall og heldur um hnéð og virðist vera sárþjáður. Vonandi er þetta ekki alvarlegt. Sigurður leggst aftur niður utan vallar og þetta lítur ekki vel út“ sagði Ívar Björgvinsson, fréttamaður Fótbolti.net í lýsingu sinni á leiknum.

Í kjölfarið greindi hann frá því að Sigurður hefði gengið afar hægt til búningsklefa. Vonandi er þetta ekki eins alvarlegt og það leit út fyrir að vera.

Staðan er markalaus í leiknum en Þróttarar geta aukið forskot sitt á toppnum í fjögur stig með sigri. Vestri getur hins vegar jafnað Þrótt að stigum með sigri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.