Fotbolti.net
12.06.19 - 11:19
Elvar Geir Magnússon

Woodgate að taka við Boro - Bilic til West Brom

Woodgate er fyrrum leikmaður Boro.

Woodgate er fyrrum leikmaður Boro.

Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough er að ráða Jonathan Woodgate sem nýjan stjóra félagsins. Woodgate, sem er 39 ára, er fyrrum varnarmaður félagsins og var landsliðsmaður á sínum tíma.

Hann tekur við af Tony Pulis sem var rekinn en Woodgate var í þjálfarateymi hans á síðasta tímabili.

Robbie Keane, aðstoðarþjálfari írska landsliðsins, gæti orðið aðstoðarmaður Woodgate en Boro hafnaði í sjöunda sæti í Championship-deildinni á liðnu tímabili.
Þá er Króatinn Slaven Bilic nálægt því að skrifa undir hjá West Bromwich Albion.

Bilic þjálfaði síðast í Sádi-Arabíu en entist aðeins fimm mánuði í því starfi. West Brom komst í umspil í Championship-deildinni en náði ekki að komast upp í úrvalsdeildina.

Bilic stýrði króatíska landsliðinu í sex ár frá 2006 en hann kom liðinu í 8-liða úrslit EM 2008.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.