Arsenal skoðar að kaupa góðvin Ísaks

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Arsenal er að skoða það að kaupa Christos Tzolis frá belgíska félaginu Club Brugge. The Athletic greinir frá þessu en talið er að Arsenal geti fengið þennan 24 ára gamla sóknarmann fyrir 40 milljónir evra.

TENGT EFNI
Ísak um herbergisfélagann: Held að Norwich sjái eftir því að hafa lánað hann
Arsenal ætlar að styrkja sóknarleikinn og kaup á Tzolis myndi ekki hafa áhrif á áhuga félagsins á Morgan Rogers, leikmanni Aston Villa.
Tzolis er grískur landsliðsmaður en hann gekk til liðs við Club Brugge árið 2024. Hann var á láni hjá Dusseldorf frá Norwich tímabilið 2023/24. Hann var samherji Ísaks Bergmanns Jóhannessonar og þeir eru miklir félagar.
Hann hefur spilað 108 leiki og skorað 43 mörk fyrir Club Brugge. Samningur hans við Club Brugge rennur út árið 2029 en hann skrifaði undir nýjan samning í fyrra.