Lárus Orri: Var geldur á miðjunni


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Víkingur sigraði ÍA 1-2 í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla á ELKEM vellinum. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Lárus Orra Sigurðsson, þjálfara ÍA, eftir leikinn.
„Ég er gríðarlega svekktur að vera dottinn út úr bikarnum, við ætuðum okkur alla leið en við duttum út gegn góðu liði. Víkingarnir eru sennilega besta lið landsins í dag. Mér fannst þetta ganga nokkuð vel varnarlega hjá okkur, við náðum að núlla þá út í sóknarleiknum. Við gerðum breytingar í hálfleik en við það opnaðist aðeins til baka hjá okkur en við náðum að halda meira í boltann.''
Gummi Tóta var tekinn útaf í hálfleik en hann var á gulu spjaldi og var búinn að brjóta af sér eftir það. Var skiptingin á honum taktísks eðlis eða vegna gula spjaldsins?
„Það var bara útaf því að Gummi fékk gult spjald fyrir brot þar sem hann braut ekki af sér, það var vitlaus maður sem fékk spjaldið þar. Svo brýtur hann af sér stuttu seinna og það var búið að gefa það í skyn að hann væri á leiðinni útaf. Eftir að hann braut af sér í seinna skiptið þorði hann ekki að fara í neinar tæklingar og var geldur á miðjunni hjá okkur.''
ÍA situr í 6. sæti Bestu deildarinnar og voru að falla úr leik í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Hvert er mat Lárusar á tímabilinu hjá ÍA til þessa?
„Byrjunin hefur verið góð að vissu leyti og öðru leyti ekki, stigasöfnunin hefur ekki verið nógu góð. Við hefðum hæglega getað verið með fleiri stig, hins vegar hefur spilamennskan verið fín á köflum. Nú er bikarinn farinn og nú tekur bara við barátta í deildinni um að koma okkur á flottan stað.''






