City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
   sun 12. júlí 2020 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Helgi Sig: Vissum að við gætum ekki unnið alla leiki
Lengjudeildin
Helgi Sigurðsson.
Helgi Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst við ekki nógu góðir í fyrri hálfleik og við fórum vel yfir það í hálfleik," sagði Helgi Sigurðsson, þjálfari ÍBV, eftir 1-1 jafntefli gegn Grindavík í Lengjudeildinni.

„Við vorum að tapa flestum boltum og návígum, vorum langt á milli lína en við löguðum það í seinni hálfleik. Við unnum fyrir því að ná í jafntefli. Auðvitað hefðum viljað þrjú stig en við getum ekkert kvartað."

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  1 Grindavík

Þetta eru fyrstu stigin sem ÍBV tapar í sumar eftir að hafa unnið fyrstu fjóra leiki sína.

„Við getum ekki unnið alla leiki og við vissum það fyrir mót að það yrði aldrei þannig; að við færum í gegnum þetta mót án þess að tapa stigum. Grindavík er með hörkulið og við berum virðingu fyrir þeim. Dagsformið skiptir máli og við vorum ekki eins skarpir í dag eins og við höfum verið."

„Við erum á toppnum eftir fimm umferðir og erum nokkuð sáttir með það."

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner