Óskar Hrafn: Róbert Elís verður ekki endurkallaður
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR var ánægður með frammistöðu sinna manna eftir 5-2 sigur á heimavelli gegn ÍBV fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: KR 5 - 2 ÍBV
Eyjamenn náðu forystunni snemma leiks en KR-ingar komu til baka og svöruðu með fimm mörkum. Það var mikill hasar á lokakafla leiksins en hvorugu liði tókst að nýta færin sín til að bæta enn fleiri mörkum við stórskemmtilegan fótboltaleik.
„Síðustu 10-15 mínúturnar voru svoldið mikið kaos, meira að segja fyrir mig sem elska gott kaos þá var þetta full mikið kaos. Þetta var mjög öflug frammistaða langstærsta hluta leiksins á móti öflugu liði sem er búið að vera á góðri siglingu. Þetta er gott veganesti fyrir Stjörnuleikinn sem er eftir viku," sagði Óskar Hrafn sem kvartaði undan færanýtingu sinna manna í fyrri hálfleiknum. Hann telur að KR hafi átt að fara inn í leikhlé með stærri forystu heldur en 2-1.
Hann hrósaði Róbert Elís Hlynssyni einnig í hástert. Róbert Elís er samningsbundinn KR en hefur verið að gera frábæra hluti á láni hjá ÍBV, þar sem hann er kominn með 4 mörk í 11 leikjum í Bestu deildinni. Hann mátti ekki spila gegn KR í dag.
Óskar ræddi einnig um markmannsbreytingarnar sem hann hefur verið að gera á milli leikja og stuttlega um Jason Daða Svanþórsson sem er genginn til liðs við félagið.

TENGT EFNI
Orri Hrafn: Held mér hafi aldrei liðið betur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð