Fotbolti.net
12.07.26 - 21:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sveinn Margeir skoraði glæsilegt mark - „Sauð aðeins á mér"

Auglýsing
Sveinn Margeir skoraði glæsilegt mark - „Sauð aðeins á mér"
Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

KA vann dramatískan sigur á ÍA í Bestu deildinni í kvöld. ÍA komst í 2-0 en Sveinn Margeir Hauksson jafnaði metin með tvennu.

Hann kom KA inn í leikinn með glæsilegu marki þar sem hann skoraði með skoti fyrir utan teiginn. Hann klikkaði á dauðafæri nokkrum mínútum áður.
Lestu um leikinn: KA 3 - 2 ÍA
„Það sauð aðeins á mér eftir að hafa klúðrað dauðafærinu á undan. Það var gott að sjá þennan inni," sagði Sveinn Margeir.

Sveini leið alltaf vel í leiknum þrátt fyrir að hafa lent undir.

„Þótt við hefðum lent undir í fyrri hálfleik leið mér mjög vel farandi inn í hálfleik. Manni leið alltaf eins og skriðþunginn væri okkar megin. Æðislegt að taka sigurinn þótt þetta hafi verið tæpt."

Liðið hafði tapað sex leikjum í röð fyrir þennan sigur.

„Það er súrt. Við eigum fullt inni eins og við sýndum í dag á köflum. Við getum spilað flottan bolta. Við eigum fullt inni og verðum að sýna það í næstu leikjum að við eigum ekki að vera á þessum stað í töflunni."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.