Mateta og Abraham á lista Villa - Tveir leikmenn orðaðir við Man Utd - Tottenham vill fá Curtis Jones
Hugarburðarbolti GW 22 Þáttastjórnandi telur Manchester United vera betri en Arsenal!
Fótbolta nördinn - SÝN vs FH
Alfreð: Tækifæri sem var of gott til að segja nei við
Kjaftæðið - United slátraði borgarslagnum
Enski boltinn - Michael Carrick og Michael Scott
Tveggja Turna Tal - Björn Daníel Sverrisson, Part II
Kjaftæðið - Upphitun fyrir enska og fréttir vikunnar
Útvarpsþátturinn - Föstudagsfjör og Balkanbræður
Fótbolta nördinn - RÚV vs Víkingur
Kjaftæðið - Stóra bikarhelgin allsstaðar!
Enski boltinn - Hver á að endurlífga Man Utd?
Útvarpsþátturinn - Nýjustu sambýlismennirnir
Hugarburðarbolti GW 21 Var lesin eins og "Litla gula hænan"
Kjaftæðið - Arsenal er fancy Stoke
Tveggja Turna Tal - Aron Baldvin Þórðarson
Kjaftæðið - Amorim rekinn!
Enski boltinn - Kaldar nýárskveðjur og er Amorim búinn?
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
Leiðin úr Lengjunni: Ótímabæra spáin
Útvarpsþátturinn - Fyrsta ótímabæra spáin og stjóraskipti Chelsea
   mán 12. september 2022 15:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ingvar Jóns: Klár aukaspyrna
,,Ef þetta væri löglegt þá væri þetta gert alls staðar í heimsfótboltanum''
Mynd af atvikinu.
Mynd af atvikinu.
Mynd: Víkurfréttir - JPK
Ingvar hefur haldið marki sínu hreinu í síðustu tveimur leikjum.
Ingvar hefur haldið marki sínu hreinu í síðustu tveimur leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Boltinn á leiðinni.
Boltinn á leiðinni.
Mynd: Víkurfréttir - JPK
„Ég upplifi þetta bara sem klára aukaspyrnu. Þetta var tekið fyrir á dómarafundi hjá okkur fyrir mót - ef leikmenn eru settir á markmann eingöngu til að hindra að ég komist út í boltann þá er það bara aukaspyrna," sagði Ingvar Jónsson, markvörður Víkings, við Fótbolta.net í dag. Víkingur vann í gær 0-3 útisigur á Keflavík í Bestu deildinni.

Viðtalið í heild má nálgast í spilaranum hér að ofan.

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  3 Víkingur R.

Keflavík kom boltanum í netið á marki Víkings í fyrri hálfleik. Markið fékk þó ekki að standa því Keflvíkingar voru dæmdir brotlegir gagnvart Ingvari. Atvikið má sjá hér að neðan.


„Þeir eru ekki einu sinni að reyna við boltann. Þó að þetta líti út fyrir að vera lítið fyrir suma þá þarf ekki mikla snertingu til að ég fái ekki mitt pláss til að vinna með. Og eitt lítið skref aftur á bak til að ýta mér inn í markið hindrar að ég komist út í boltann og það er bara aukaspyrna. Ég er alveg pottþéttur á því að ef þetta hefði gerst hinumegin á vellinum þá hefðu Keflvíkingar viljað fá aukaspyrnu. Auðvitað skil ég að þeir eru pirraðir og svekktir að fá þetta mark dæmt af sér, en frá mínu sjónarhorni er þetta bara aukaspyrna."

„Ef þetta væri löglegt þá væri þetta gert svona alls staðar í heimsfótboltanum, bara settir 3-4 leikmenn í vegg á markmanninn, honum ýtt í markið og skotið á markið úr hverri hornspyrnu."


Hvað hugsaði Ingvar þegar boltinn fór í netið?

„Auðvitað þegar boltinn fer í netið þá veit maður ekki hvort að dómarinn taki rétta ákvörðun eins og mér finnst hann klárlega hafa gert. Auðvitað hugsar maður bara að þetta hafi verið brot."

„Mér finnst dómararnir hafa gert þetta vel í sumar, maður hefur reynt að fylgjast með þessu því oftast á Íslandi - í gegnum tíðina- þá leyfa dómarar mjög mikið brot á markmanni að mínu viti. Það eru eflaust margir ósammála því en mér finnst þetta klár aukaspyrna. Það þarf oft ekki mikla snertingu til að maður eigi ekki séns í boltann. Að menn bakki og blokkeri án þess að reyna við boltann finnst mér klár aukaspyrna."


Er ástæðan fyrir þessari uppstillingu Víkings, að hafa engan varnarmann í kringum Ingvar í þessari hornspyrnu, þessar upplýsingar á dómarafundi fyrir tímabil?

„Svona stillum við upp og þrátt fyrir að lið setji menn á mig þá er það bara aukaspyrna ef þeir fara fyrir mig og blokkera mig. Mér finnst óþarfi að vera bæta við fleiri mönnum. Ef ég set fjóra varnarmenn fyrir framan mig er ég kominn með helmingi fleiri menn í kringum mig og ef ég fer í minn mann þá er það ekki aukaspyrna. Svona stillum við bara upp og það hefur gengið vel í sumar," sagði Ingvar.

Hann er í viðtalinu spurður út í toppbaráttuna, breyttan leikstíl Víkings og landsliðið.
Innkastið - Draumaumferð KA, glataðir Valsarar og Stjarnan í frjálsu falli
Athugasemdir
banner
banner