Fotbolti.net
12.09.26 - 10:30
Brynjar Ingi Erluson

Richarlison enn með nokkra kosti í stöðunni - Liverpool vill fá Olise

Hvert fer Richarlison?

Hvert fer Richarlison?

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Það er enn von fyrir Richarlison sem reynir að komast frá Tottenham, Liverpool hefur mikinn áhuga á Michael Olise og Manchester United er að skoða bakvörð Bournemouth. Þetta og fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Nokkur félög hafa enn áhuga á brasilíska framherjanum Richarlison (29) eftir að félagaskipti hans frá Tottenham til Vasco da Gama fóru út um þúfur. (UOL)

Brasilíumaðurinn Philippe Coutinho (34) hefur samþykkt að ganga til liðs við Santos og semja til áramóta. Þá tekur hann ákvörðun um hvort hann haldi áfram að spila eða leggi skóna á hilluna. (Globo)

Manchester United fylgist náið með stöðu franska bakvarðarins Adrien Truffert (24) hjá Bournemouth, sem metur hann á 60 milljónir punda. (Teamtalk)

Liverpool hefur enn mikinn áhuga á Aleksandar Stankovic (21), miðjumanni Inter, eftir að hafa spurst fyrir um hann í sumarglugganum. (Teamtalk)

Crystal Palace hefur ekki gefist upp á að fá franska miðvörðinn Raphael le Guen (20), sem félagið reyndi að kaupa í sumar. (Ouest-France)

Liverpool vill fá Michael Olise (24) frá Bayern München en hann verður ekki til sölu í janúar. (Christian Falk)

Senegalski miðjumaðurinn Lamine Camara (22) einbeitir sér alfarið að Mónakó eftir að félagaskipti hans til Chelsea duttu upp fyrir sig undir lok sumargluggans. Hann vonast þó til að fleiri tækifæri til að færa sig um set bjóðist í framtíðinni. (ESPN)

Jadon Sancho (26) mun ekki semja við nýtt félag á næstu dögum en hann er enn að vega og meta möguleika sína eftir að hafa yfirgefið Man Utd í júní. (Football Insider)

Lazio og Parma hafa bæst í baráttuna við Everton um argentínska framherjann Mauro Icardi (33), sem hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Galatasaray í sumar. (Corriere dello Sport)

Spænska félagið Malaga íhugar að fá franska framherjann Anthony Martial (30), sem lék áður með Manchester United. Hann hefur verið án félags síðan hann fór frá mexíkóska félaginu Monterrey í júní. (Mundo Deportivo)
Liverpool hefur áhuga á Olise

Liverpool hefur áhuga á Olise

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.