12.09.26 - 10:51
Brynjar Ingi Erluson
Sissoko á leið í grísku B-deildina

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Franski miðjumaðurinn Moussa Sissoko, sem spilaði með Newcastle og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni frá 2013 til 2021, er á leið í B-deildina í Grikklandi.
Sissoko er sagður á leið til Panionios í grísku B-deildinni eftir að hafa ekki náð sér á strik hjá Panathinaikos. Viðræðum miðar áfram og eru miklar líkur á að hann gangi til liðs við félagið á næstu dögum.
Frakkinn er 37 ára og var öflugur á sínum bestu árum, en hann gerði vel hjá Newcastle áður en Tottenham keypti hann árið 2016. Hann var einn af bestu mönnum Tottenham þegar liðið komst í úrslit Meistaradeildarinnar tímabilið 2018-2019.
Sissoko hefur einnig leikið með Toulouse, Watford og Nantes á ferlinum en Panathinaikos fékk hann í byrjun þessa árs. Dvölin þar hefur ekki gengið upp og félagið vill nú losa sig við hann.
Hann á 71 A-landsleik að baki fyrir Frakkland og tvö mörk og var meðal annars í hópnum sem vann til silfurverðlauna á EM 2016.