Fotbolti.net
12.11.19 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Harris líklegastur til að taka við Cardiff

Neil Harris.

Neil Harris.

Canon

Mynd: Getty Images

Neil Harris, fyrrum stjóri Millwall, þykir langlíklegastur til að taka við Cardiff eftir að Neil Warnock sagði upp störfum í gær.

Hinn sjötugi Warnock hætti í gær eftir þrjú ár í stjórastólnum hjá Cardiff.

Mehmed Dalman, formaður Cardiff, segir að félagið ætli að fá yngri stjóra og að líklega verði gengið frá ráðningu í vikunni.
Harris er 42 ára gamall en hann hætti hjá Millwall á dögunum eftir að hafa verið við stjórnvölinn þar síðan 2015.

Cardiff er í 14. sæti í Championship deildinni en liðið tapaði 1-0 gegn Bristol City um helgina.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough13+1328
2Swansea13+726
3Wolves13+724
4West Brom13+524
5Southampton13+1523
6Birmingham13+1023
7Stoke City13+423
8West Ham13+1522
9QPR13+520
10Sheffield Utd13+219
11Portsmouth13+119
12Millwall13+218
13Blackburn13-118
14Bristol City13-218
15Norwich13-115
16Lincoln City13-915
17Cardiff City13-114
18Wrexham13-414
19Bolton13-814
20Charlton Athletic13-1014
21Watford13-1111
22Burnley13-89
23Derby County13-147
24Preston NE13-175
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.