Mótanefnd KSÍ hefur birt drög að leikjum 2. deildar kvenna keppnistímabilið 2020. Þrjú ný lið koma inn í deildina og því er um tíu liða deild að ræða.
Fram og Hamar mæta til leiks með ný lið en Fram sendi síðast sameinað lið til leiks með Aftureldingu árið 2018.
HK er einnig á meðal þátttakenda, en frá 2001 hefur liðið teflt fram sameinuðu liði með Víkingi R.
Tíu lið taka þátt í mótinu í ár og eru þau:
Álftanes
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir
Fram
Grindavík
Hamar
Hamrarnir
HK
ÍR
Leiknir R.
Sindri
Leikin er tvöföld umferð.
Smelltu hér til að sjá drög að leikjaniðurröðun á vef KSÍ
Athugasemdir